29.1.2011 | 18:48
Ögurstund náglast
Þetta var glæsileg ræða hjá Jóhönnu sem kann að kallar hlutina sínu rétta nafni. Hún veit sem er að sérhagsmunaöflin eru reiðubúin í hvaða óþverrabrögð sem gæti komið henni að gagni. Það er t.d. ekki langt síðan LÍÚ hótaði að sigla flotanum í land ef ekki yrði gengið að ákveðnum kröfum þeirra.
En vonandi heldur SA með Vilhjálm tvíhöfða að storka þjóðinni, því fyrr áttar hún sig á við hvers lags öfl er að eiga við.
Það verður að gera gagngerar breytingar á fiskveiðikerfinu og það ekki seinna en núna. Því verður karl kvölin hann Jón Bjarna að fara að leggja fram frumvarp um breytingar á kerfinu. Þá sjáum við fyrst hverjir það eru á þingi sem standa í lappirnar en selja sig ekki sérhagsmunaöflunum fyrir silfurpeninga.
Með núverandi fiskveiðistjórnarlögum voru sett þrjú markmið. Treysta byggðirnar, efla atvinnu og byggja upp fiskstofnana. Engin þeirra markmiða hafa náðst og er í raun haf og himinn á milli þeirra og þess "árangurs" sem náðst hefur - ef árangur skildi kalla.
En í þrætu um eignarhaldið og nýtingarréttinn mega menn samt ekki missa sjónar á því, að krabbameinið í kerfinu er Hafrannsóknarstofnun og sú vísindaklíka sem rænt hefur þessari stofnun og heldur henni í vísindalegri gíslingu.
Ef ég ætti að velja á milli þess annars vegar að gera breytingar á stjórnarskránni, eignarhaldinu og því sem því tilheyrir og svo hins vegar nýtingarstefnunni og ráðgjöfinni. Þá er ég ekki í nokkrum vafa. Það er mun mikilvægara að taka Jóhann forstjóra Hafró og hans sértrúarsöfnuð sem engu heftur skilað og henda þeim í gúanó.
Röng nýtingarstefna sem viðgengist hefur hér i áratugi kostar þjóðina tugi milljarða á ári, en veiðileyfagjald sem þorri almennings krefst að útgerðin greiði fyrir einkaafnotarétt aðeins örfáir milljarðar - dugar ekki einu sini til að reka Fiskistofu hvað þá Hafró eða Gæsluna...
Ögurstund í sjávarútvegsmálum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
floyde
Tónlistarspilari
Tónlist
Tónlist
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 43271
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég man ekki betur en sjómenn hafi hótað að sigla í land ef stjórnin tæki af þeim sjómannaafsláttinn.
Ólafur Ingi Hrólfsson, 29.1.2011 kl. 19:25
Það sem ég er að vitna til Ólafur, er að 13. janúar í fyrra samþykkti LÍÚ að sigla flotanum í land ef ríkisstjórnin léti ekki af "hótun" sinni um að fyrna aflaheimildirnar. Þetta var í framhaldi af því að Jón Bjarnason kynnti breytingu á skötuselnum. Þessi hótun var ekki út í loftir, heldur samþykkt í stjórn LÍÚ.
Því fyrr sem landinn átta sig á því hvers lags viðbjóð við höfum dinglandi yfir höfðinu á okkur, því betra. Því fagna ég hverri yfirlýsingunni sem kemur frá þessum samtökumog þeirra pótintátum sem kunna ekki nokkra mannasiði.
Atli Hermannsson., 29.1.2011 kl. 19:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.