22.3.2009 | 21:52
Ásbjörn Óttars.
Ég vil byrja á því að óska Ásbirni Óttarssyni útgerðarmanni á Rifi til hamingju með sigurinn í prófkjörinu. Á árunum milli 1985 til 2000 lá leið mín oft á Snæfellsnesið til að hitta útgerðarmenn og skipstjóra. En tilgangurinn var að reyna að selja þeim veiðarfæri, svo sem þorskanet, línu, togvíra og dragnótatóg svo það helsta sé nefnt. Við flesta þessa karla átti ég mjög góð samskipti og eru margir þeirra mér mjög minnisstæðir. Ási er einn þeirra. Hann er virkilega líflegur og skemmtilegur persónuleiki sem t.d. hefur ekkert fyrir því að fá fólk til að hlusta þegar hann talar....góður eiginleiki sem mun nýtast honum vel í hans nýja starfi... Velkominn á mölina Ási.
Ákveðin krafa um endurnýjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
floyde
Tónlistarspilari
Tónlist
Tónlist
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 43271
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er hægt að bæta ýmsu við þessa færslu og segja margar sögur af ferðum mínum á Snæfellsnesið. En eins og gefur að skilja er sölumönnum misvel tekið og þá stendur ekki alltaf jafn vel á spori hjá mönnum.... Ég segi ekki að ég hafi stundað það; en ef það var að styttast í matartíma þegar maður leit við í fiskverkuninni hjá Ásbirni - þá var maður bara tekinn með heim í mat.
Atli Hermannsson., 24.3.2009 kl. 21:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.