Ef ég klóra þér...

„Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að ganga í Evrópusambandið. Ég skil ekkert í landsfundarfulltrúum að segja það ekki bara beint út," sagði Pétur Blöndal, alþingismaður, einn þeirra sem lagði fram tillögu um að tillaga Evrópunefndar yrði felld."

Þessi ummæli Péturs Blöndal staðfesta í raun það sem flestir ættu fyrir löngu að vera búnir að átta sig á; það er að maðurinn er kolruglaður. Síðan hvenær hafa stjórnmálaflokkar annars gengið í ESB? Pétur ætti ásamt öðrum alþingismönnum Sjálfstæðisflokksins að sjá sóma sinn í því að skammast sín fyrir það hvað þeir hafa gert þjóðinni. Eftir18 ár í ríkisstjórn skilja þeir við með þorra landsmanna með hengingaról um hálsinn. Þá eru öll smærri og meðalstór fyrirtæki landsmann á hvínandi hausnum. Allir vita svo hvernig komið er fyrir þeim stærri - en þau hafa ýmist verið tekin yfir af Ríkinu eða bíða þess að verða það á næstu misserum. Arfleið Sjálfstæðisflokksins eftir allt stjórnleysið, sukkið og einkavinavæðinguna -  er mesta ríkisvæðing sögunnar.

Hverju á svo að breyta? Engu, því flokkurinn ætlar að beita sér gegn ESB aðild...það á að reyna að halda áfram með krónuna sem rýrnað hefur um 1.900% gagnvart þeirri dönsku á lýðveldistímanum...og þá mun ekki verða hreyft við gjafakvótakerfinu sem engu hefur skilað nema sífellt minni afla og stækkandi skuldasúpu -  sem er orðin fimmfalt stærri en árlegar aflaheimildirnar....... hvílík skömm.


mbl.is Þjóðin fái að skera úr um ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Atli Hermannsson.

Og það er ekki bara Pétur Blöndal sem á í megnustu erfiðleikum með að gera greinarmun á FLOKKNUM og Þjóðinni, því Sigurður Kári sagði þetta í þrunginni ræðu sinni

 “Vilji Sjálfstæðisflokkurinn halda yfirráðum sínum yfir sjávarútvegsauðlindinni, þá felur það í sér að Sjálfstæðisflokkurinn vill standa utan við Evrópusambandið."

Atli Hermannsson., 30.3.2009 kl. 10:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

floyde

Höfundur

Atli Hermannsson.
Atli Hermannsson.

Ég er fæddur og uppalinn Akureyringur, búsettur í Kópavogi. 

metaco@simnet.is

Sími 897 8060 

Tónlistarspilari

Allman Brothers Band - Whipping Post
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 08.19.Nordvag02c
  • 08.19.Nordvag02c
  • CAM00620
  • JB23
  • JB22

Tónlist

Tónlist


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 42910

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband